BIKARKEPPNIN
Reyndu að verða bikarmeistari
Draftaðu ellefu menn og komdu þeim frá 32-liða úrslitum alla leið í úrslitaleikinn, úr bestu liðum sögunnar eða úr Bestu deildinni í dag gegn gömlu meisturunum.
Liðin eru meistarar efstu deildar 1986-2024 og lið sem komust í riðla- eða deildarkeppni í Evrópu. Þeim er raðað eftir stigum og markatölu á leik, forskoti á næsta lið, tvennu og Evrópugengi, og árangur hvers liðs er staðfestur úr leikskýrslum KSÍ og töflum ensku og íslensku Wikipedia. Leikmenn eru byrjunarliðsmenn úr leikskýrslum KSÍ, með stöðu frá Transfermarkt, og einkunnir sögulegu leikmannanna taka mið af lista Vísis yfir 60 bestu leikmenn deildarinnar frá upphafi, sem lyftir leikmanni hversu sterkt sem liðið hans var. Hver staða er metin á móti sínum líka, svo varnarmenn og markverðir standi jafnfætis sóknarmönnum, og þar sem Sofascore-einkunn tímabilsins er til (2023-2025) ræður hún líka. Núverandi leikmenn bera FIFA-einkunnir sínar af síðunni Leikmenn. Einkunnir og úrslit eru leikur, ekki staðreyndir.